Skýrsla starfshóps fjármálaráðherra um aflandsfélög og áhrif þeirra er afar athyglisverð, svo ekki sé nú meira sagt, og á hún fullt erindi við almenning. Það er því algjörlega óásættanlegt að fjármálaráðherra, sem sjálfur tók þátt í aflandsbraski, hafi haldið henni leyndri í tæpa 4 mánuði, jafnvel lengur.