Vigdís Hauksdóttir, þingmaður framsóknarflokksins, vill meina að ríki Evrópu séu vísvitandi að æsa forstöðumenn opinberra stofnana á Íslandi til fylgis við ESB með IPA styrkjum. Hún vill því meina að forstöðumenn opinberra stofnana gangi erinda erlendra þjóða gegn greiðslu.
Í raun er hún að saka allt þetta fólk um landráð.
Það er ekki lengur hægt fyrir stjórnarliða að láta sem ekkert sé þegar Vigdís Hauksdóttir á í hlut. Stjórnarflokkarnir fólu Vigdísi Hauksdóttur eitt mikilvægasta og áhrifamesta embætti Alþingis, formann fjárlaganefndar. Stjórnarliðar úr báðum flokkum ákváðu að gera hana að talsmanni stjórnarliða í fjármálum ríkisins og þar með áhrifamesta þingmann beggja flokkanna á Alþingi. Formenn stjórnarflokkanna verða nú annað tveggja að taka undir álit formanns fjárlaganefndar á forstöðumönnum opinberra stofnana eða gera það að engu með afdráttarlausri yfirlýsingu.
Vigdís Hauksdóttir er ekki lengur afsökun fyrir hálfvitaskap af þessu tagi.
Comments
Birgir Scheving
12. ágúst 2013 - 22:35
Permalink
hmmmm,
Þetta fólk er nú kanski í óvita skap að fremja landráð rétt eins og þið VG gerðuð er þið sættust undir AGS og ESB