Samhengislaust rugl um höftin - uppfært

Ég hef áður fjallað um samhengislausar yfirlýsingar formanna hægriflokkanna um afnám gjaldeyrishaftanna. Það er full ástæða til að uppfæra þann lista, enda af nógu að taka.

Þann 23. apríl 2013 sagði formaður sjálfstæðisflokksins að hægt yrði að afnema gjaldeyrishöftin á næstu mánuðum.

Þann 23. apríl  2013 sagði formaður framsóknarflokksins að afnám haftanna myndi ekki taka langan tíma.

Þann 27. maí 2013 tilkynnir nýr forsætisráðherra að höftin verði afnumin samkvæmt áætlun sem byggist á hans hugmyndum.

Þann 27. maí 2013 segir forsætisráðherra að áætlun sín verði birt í september það sama ár.

Þann 15. ágúst 2013 tilkynnir forsætisráðherra um að hann hafi skipað sérstakan afnámsstjóra.

Þann 20. september 2013 segir forsætisráðherra að afnám haftanna geti hafist í fyrirsjáanlegri framtíð.

Þann 15. október 2013 fullyrðir fjármálaráðherra að stutt sé í afnám haftanna.

Þann 16. október 2013 segir fjármálaráðherra að meiriháttar skref um afnám haftanna verði kynnt á næstu fimm mánuðum.

Þann 30. október 2013 segir forsætisráðherra að það geti tekið nokkur ár að afnema höftin.

Þann 31. október 2013 segir forsætisráðherra að það taki bæði skamman tíma og langan að afnema höftin.

Þann 15. nóvember 2013 tilkynnir forsætisráðherra um skipan sérstaks ráðgjafahóps um afnám haftanna.

Þann 30. nóvember 2013 segir forsætisráðherra að skattlagning þrotabúanna muni ekki tefja afnám haftanna.

Þann 26. janúar 2014 segir forsætisráðherra að ríkisstjórnin hafi skamman tíma til að afnema höftin.

Þann 9. febrúar 2014 segir fjármálaráðherra að afnám haftanna gæti hafist á árinu.

Þann 20. febrúar 2014 segir forsætisráðherra að það þjóni ekki tilgangi að opinbera leynilega áætlun um afnám haftanna byggða á hans hugmyndum.

Þann 20. febrúar 2014 segir forsætisráðherra að beðið sé eftir gögnum frá Seðlabankanum til að hægt verði að greina frá hugmyndum stjórnvalda um afnám haftanna.

Þann 25. febrúar 2014 segir fjármálaráðherra að framkvæmd afnáms gjaldeyrishaftanna sé í fullum gangi.

Þann 27. mars 2014 segir fjármálaráðherra að afnám haftanna sé forgangsmál hjá ríkisstjórninni.

Þann 4. apríl 2014 tilkynnir fjármálaráðherra um fjölgun ráðgjafa við afnám haftanna og að fyrstu skrefin í afnámi þeirra verði tekin á næstu mánuðum.

Þann 7. júní 2014 segir fjármálaráðherra að það þurfi pólitískan kjark til að afnema höftin.

Þann 16. júlí 2014 segir forsætisráðherra að afnám haftanna hefjist á árinu.

Þann 25. september 2014 segir fjármálaráðherra að árið 2014 verði örlagaár við afnám haftanna. Ekki sé eftir neinu að bíða.

Þann 20. október 2014 segir fjármálaráðherra að höftin verði líklega afnumin í skrefum.

Þann 1. nóvember 2014 segist fjármálaráðherra aldrei hafa verið jafn sannfærður um að markverður árangur muni nást á næstu mánuðum við afnám haftanna.

Þann 11. nóvember 2014 segist fjármálaráðherra vongóður um að geta opinberað áætlun um afnám haftanna fyrir jól.

Þann 12. nóvember 2014 segir fjármálaráðherra frá því að kostnaður við afnám haftanna sé kominn í 335 milljónir á árinu.

Þann 4. janúar 2015 tilkynnir forsætisráðherra að næstu skref við afnám haftanna verði tekin í mánuðinum.

Þann 9. janúar 2015 skipar forsætisráðherra enn einn hópinn um afnám haftanna.

Þann 20. janúar 2015 segir fjármálaráðherra að afnám haftanna sé að hefjast og það skipti ekki öllu hvoru megin mánaðamótanna það verði úr þessu.

Niðurstaðan er í stuttu máli sú að yfirlýsingar formanna stjórnarflokkanna um afnám gjaldeyrishaftanna er meira og minna samhengislaust rugl. Þeir virðast hvorki hafa skilning á viðfangsefninu né getu til að takast á við það. Yfirlýsingar þeirra hafa skaðað hagsmuni Íslands og veikt stöðu landsins í samskiptum við erlenda aðila.
Enn er unnið eftir áætlun um afnám haftanna sem samþykkt var á Alþingi í mars 2011. Hvorugur formanna hægriflokkanna studdi þá áætlun frekar en aðrir þingmenn sömu flokka.