Af hverju segir hann þá ekki af sér?

 Við skulum gefa okkur eitt augnablik að forsætisráðherrann sé ekki jafn stjörnugalinn og margir vilja halda. Það sé því rétt mat hjá honum að aðgerðir stéttarfélaganna í landinu séu flokkspólitískar og beinist gegn ríkisstjórn hans frekar en að bæta kjör fólksins í landinu.
Þá er staðan svona:
Níu af hverjum tíu landsmanna styðja kröfur stéttarfélaganna og aðgerðir þeirra. Nærri 100 þúsund launþegar hafa þá tekið höndum saman um að koma ríkisstjórninni frá og eru tilbúnir að fara í harðar verkfallsaðgerðir í þeim tilgangi.
Ef forsætisráðherrann trúir eigin kenningu - af hverju tekur hann þá ekki þessi skilaboð til sín og segir af sér?
 

 

Comments

Jon Pall Gardarsson's picture

Vantar ekki "ekki" í síðustu málsgreinina hjá þér?
Þetta er annars nokkuð góð pæling hjá þér :)