Arion banki í vafasömum gjörningi

Arion banki, sem er  13% í eigu ríkisins, seldi fyrir einungis nokkrum vikum handvöldum aðilum hluti í Símanum hf. í tveimur 5% skömmtum.  Fyrri hópurinn sem fékk að kaupa á genginu 2,5 kr. á hlut innihélt Orra Hauksson forstjóra Símans og nokkra aðra íslenska og erlenda fjárfesta sem flestir tengjast Símanum ekkert. Seinni hópurinn samanstóð af svokölluðum „einkabankakúnnum“ Arion banka sem fékk að kaupa á genginu 2,8 kr. á hlut.  Einkabankakúnnar eru ríkustu viðskiptavinirnir í eignastýringu Arion banka. Spyrja má hverjir vildarvinir Arin banka séu í þessu samhengi. Eru ráðherrar og/eða þingmenn stjórnarflokkanna í þeim hópi?
Allir þessir aðilar keyptu hluti í fyrirtækinu á verði sem er talsvert undir því sem almenningi og öðrum stendur til boða að kaupa núna. Einstaklingar fá að kaupa á genginu 3,1 kr. á hlut en fagfjárfestar á genginu 3,4 kr. á hlut. 
Á einungis nokkrum vikum sem liðnar eru frá því að Arion banki seldi forstjóra Símans og öðrum fjárfestum hlut í fyrirtækinu hefur verðgildi þess hlutar aukist um allt að 49% miðað við útboðsgengið 3,4 kr. á hlut sem kynnt var í dag. Með öðrum orðum; velgerðargjörningur Arion banka hefur skilað forstjóra Símans gríðargóðri ávöxtun á einungis einum mánuði. Aðrir stjórnendur Símans og hinir handvöldu kúnnar og fjárfestar Arion banka hafa einnig grætt mikið á sínum bissness við bankann.
Þetta heitir spilling.
Hana verður að stöðva.
Þótt hlutur ríkisins í Arion banka sé ekki mjög stór ber handhafa þess hlutar (fjármálaráðherra) að svara fyrir sinn þátt í þessum vafningi. Þingmenn í stjórn- jafnt sem stjórnarandstöðu hljóta að láta sig þetta mál varða og krefja ráðherrann um viðbrögð.
Annað væri hneyksli.