Elliði Vignisson sendir þingmönnum sjálfstæðisflokksins neyðarkall í dag. Ekki vegna fjárlagafrumvarpsins, niðurskurðarins í heilbrigðis- og menntakerfinu og ekki vegna þess að hætt hefur verið við byggingu á nýjum Herjólfi. Neyðarkallið er sent út fyrir hönd útgerðarmanna í Vestmannaeyjum og þeim til bjargar. Ástæðan er frétt í dagblaði útgerðarmanna um að afkoma sjávarútvegsins hafi orðið lítið eitt verri á árinu 2013 en hún var árið á undan og að sjávarútvegurinn í heild sinni greiði tæpa 9 milljarða króna í tekjuskatt. Elliði heldur því einnig fram að afurðaverð á sjávarafurðum fari lækkandi.
Íslenskur sjávarútvegur hefur aldrei gengið betur en á undanförnum 4-5 árum. Fyrirtækin hafa skilað eigendum sínum góðum arði um leið og þau hafa greitt niður skuldir sínar í gríð og erg og fjárfest meira en áratugina þar á undan. Samanlagður tekjuskattur sjávarútvegsins upp á 8,7 milljarða er jákvæð afleiðing góðrar afkomu, minnkandi skulda og þess að fyrirtækin eru uppiskroppa með uppsafnað tap frá fyrri árum. Tekjuskattur greinarinnar í heild upp á 8,7 milljarða getur heldur ekki talist vera há upphæð í samhengi hlutanna. Er t.d. lægri upphæð en auðlegðarskatturinn sem á að fella úr gildi um áramótin.
Þvert á það sem Elliði heldur fram um þróun afurðaverðs, hefur það verið að hækka að undanförnu eins og sjá má á myndinni hér að ofan (IFS-greining). Verð á mjöli hefur t.d. hækkað um þriðjung á árinu sem hefur komið fram í afkomu uppsjávarfyrirtækja, m.a. af kolmunnaveiðum. Verð á hlutabréfum í HB-Granda, eina sjávarútvegsfyrirtækinu á hlutabréfamarkaðinum, hefur skiljanlega hækkað enda afkoman góð og eftirsókn er í kaup á fyrirtækjum í sjávarútvegi og aflaheimildum. Allt þetta er vegna þess að það er sem betur fer góður gangur í greininni og framtíðin er björt, öfugt við barlóminn í bæjarstjóranum í Eyjum.
Mínum uppáhalds -sjálfstæðismanni (í augnablikinu)!
Comments
Jeff Garland
3. desember 2015 - 0:16
Permalink
Time for a complete change, Kannski>
https://www.facebook.com/photo.php?v=751755474957053