Fúl mí vons ...!

 Samkvæmt því sem fram hefur komið í fréttum segir Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri Seðlabankans, að tilviljun ein hafi ráðið því að hann hljóðritaði símtal sitt við Geir H Haarde þar sem endanlega ákvörðun um Kaupþingslánið var tekinhaustið 2008.
Í því sambandi má rifja upp að DO hljóðritaði, væntanlega líka „fyrir tilviljun“, annað símtal  án heimildar þess sem hann hringdi í. Það gerði hann þegar hann hringdi í seðlabankastjóra Bretlands, Mervyn King . DO sagði síðan frá því að í því símtali hafi sá breski lofað því að falla frá kröfum á hendur Íslandi vegna Icesave-reikninganna. Breski bankastjórinn sagði fullyrðingar Davíðs rakalausan þvætting. Það breytti því ekki að í kjölfar þess viðtals fóru þingmenn sjálfstæðisflokksins fram á að símtalið yrði birt opinberlega eða til vara að þeir gætu kynnt sér það. Það gekk erfiðlega en á endanum heimilaði Mervyn King að fjárlaganefnd og utanríkismálanefnd þingsins fengju að lesa útskrift af símtalinu. Eftir það hefur ekki verið minnst á þetta símtal af hálfu sjálfstæðismanna og engar frekari kröfur gerðar af þeirra hálfu til að opinbera það sem þar kom fram.

Þær eru margar tilviljanirnar.