Framsókn hefur yfirtekið DV

Það hefur verið þyngra en tárum taki að fylgjast með darraðadansinum í kringum DV. Ríkir karlar reyndu að kaupa það til að losna við umfjöllun um sig. Hortugir lögmenn lögðu þeim lið. Stjórnmálamenn reyndu að koma blaðamönnum DV í fangelsi vegna gagnrýninnar fréttamennsku sem á endanum leiddi til afsagnar síljúgandi ráðherra og starfsliðs hennar. Að lokum var það svo framsóknarflokkurinn sem tók blaðið yfir enda vantað tilfinnanlega fjölmiðil sem skilur þann undarlega flokk. Það er blátt áfram mógðun við lesendur DV og almenning í landinu að halda því fram að öðruvísi sé það. Hafi einhver vafi leikið á því ætti pólitísk saga Björns Inga Hrafnssonar, stjórnarformanns DV, að duga til að eyða honum. Örli enn á efasemdum einhvers staðar ætti ráðning Eggerts Skúlasonar sem ritstjóra DV að duga til að blása þeim endanlega út í blásvart myrkrið. Björn Ingi fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra og borgarfulltrúi framsóknarflokksins og Eggert pólitískur ráðgjafi hans, vonarstjarna framsóknar og tilnefndur sem fréttastjóri RÚV af hálfu flokksins á sínum tíma. Eða er það kannski gleymt?
Framsóknarflokkurinn hefur yfirtekið DV.
Svo einfalt er það.