Í dag lagði ég fram eftirfarandi bókun á fundi atvinnuveganefndar:
„Í ljósi persónulegra hagsmuna nefndarmanna í atvinnuveganefnd við afgreiðslu frumvarps um breytingar á lögum um veiðigjöld vil ég að eftirfarandi komi fram: Ég tel ekki fara vel á því að þingmenn sem hafa ríka persónulega hagsmuni af málum sem þingið hefur til umfjöllunar taki þátt í umræðum og afgreiðslu um þau mál í nefndum þingsins. Með því er sáð efasemdum um hagsmunaárekstra viðkomandi þingmanna sem varpað geta rýrð á störf nefnda og þingsins við vinnslu og afgreiðslu mála. Auðveldlega má komast hjá slíku með því að nefndarmenn víki sæti við umfjöllun og afgreiðslu mála sem þeim tengjast. Ég mun senda forseta Alþingis erindi í kjölfar þessarar bókunar og óska eftir því að hann taki þetta mál til umfjöllunar með það í huga að bregðast við með hagsmuni Alþingis í huga.“
Markmiðið með þessari bókun er að vekja athygli á að gríðarlegir persónulegir hagsmunir geta verið í húfi fyrir einstaka nefndarmenn við afgreiðslu frumvarps um lækkun veiðigjalda. Að mínu mati er það ekki málinu til framdráttar og því síður þeirra nefndarmanna sem beina hagsmuna gætu haft af, að vafi leiki á um afgreiðslu þess á þingi að þessu leyti.