Helvítis ríkisstjórnin ...

Nú þegar kjörtímabilinu er við það að ljúka er gott að minnast þess sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar má skammast sín fyrir:

Fyrir að bjarga Íslandi frá fullkomnu gjaldþroti og íbúunum landsins frá ánauð og langvarandi niðurlægingu á alþjóðavettvangi, fyrir að lækka rekstrarhalla ríkissjóðs úr 216 milljörðum í 4 milljarða án þess að kollkeyra samfélagið, fyrir að verja velferðarkerfið, fyrir að loka ekki sjúkrahúsum og skólum eins og aðrar þjóðir hafa gert, fyrir að hafa náð að lækka skuldir heimila þannig að þær eru nú á sama róli og var árið 2006, fyrir að hafa náð að draga svo úr atvinnuleysi að það er hvergi minna í Evrópu, fyrir að hafa lækkað verðbólgu úr 20% í tæp 4%, fyrir að hafa náð vöxtum úr 18% í 5%, fyrir að draga svo úr fátækt á Íslandi að það er minna en var í góðærinu, fyrir hagvöxtinn sem er einn sá mesti í Evrópu, fyrir landsdóminn, fyrir að hafa gert ungu fólki kleift að stunda nám í stað þess að vera atvinnulaust, fyrir að láta velferðarkerfið virka þrátt fyrir Hrunið, fyrir að hafa lagt tugi milljarða til skuldamála heimilanna, fyrir að greiða niður þriðjung vaxta hjá skuldugum heimilum, fyrir að hafa endurskoðað regluverkið utan um fjármálakerfið, fyrir að fækka ráðherrum úr 12 í 8 og endurskipuleggja áður hálf ónýtt og lamað stjórnkerfi, fyrir að afnema sérréttindi ráðherra sem sett voru í tíð hægrimanna, fyrir að samþykkja rammaáætlun, fyrir að lögfesta barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, fyrir að setja ný náttúruverndarlög, fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, fyrir kosningar til stjórnlagaráðs, fyrir að setja veiðigjöld á sjávarútveginn, fyrir að endurskoða þingsköp og auka vægi minni hlutans á þingi, fyrir strandveiðarnar, fyrir að verja rétt landsins vegna makrílveiða, fyrir breytingarnar á skattakerfinu, fyrir þrepaskipta skattkerfið, fyrir auðlegðarskattinn, fyrir að tvöfalda fjármagnstekjuskattinn, fyrir að færa skatta á fyrirtæki til samræmis við það sem annarsstaðar gerist, fyrir stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs, fyrir friðun landsvæða, fyrir að koma í veg fyrir fólksflótta frá landinu vegna Hrunsins, fyrir að setja lög um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyritækjum, fyrir að hafa dregið úr ójöfnuði í landinu, fyrir að afnema ráðherraskipanir dómara, fyrir að hefja táknmál til vegs og virðingar, fyrir að gera hæfniskröfur til Seðlabankastjóra í fyrsta skipti í lýðveldissögunni, fyrir að setja ríkisstjórninni og stjórnarráðinu siðareglur, fyrir að stórauka vægi umhverfisverndar í stjórnarráðinu, fyrir að jafnrétti á Íslandi mælist nú meira en í nokkru öðru landi, fyrir að auka vægi skapandi greina, fyrir stuðning við kvikmyndagerð, fyrir stuðning við menningu og listir, fyrir fjárfestingaráætlunina sem gerir ráð fyrir 40 milljörðum í margskonar framkvæmdum á næstu árum, fyrir að styðja vel við tækni- og hugverkageirann, fyrir græna hagkerfið, fyrir að innleiða kynjaða hagstjórn, fyrir að hefja byggingu nýs fangelsis, fyrir að leggja aukið fé til tækjakaupa á sjúkrahúsum, fyrir vegaframkvæmdir og fleiri verklegar framkvæmdir, fyrir að ráðstafa nú hærra hlutfalli til velferðar- og félagslegra mála en gert var í góðærinu, fyrir að hafa staðið af sér tvær vantrausttillögur, fyrir að hafa barist til síðasta dags fyrir nýrri stjórnarskrá, fyrir að hafa mátt þola órétti og ofbeldi af hálfu hægrimanna sem náðu að koma í veg fyrir að fleira gott næði fram að ganga á kjörtímabilinu.

Hafi ríkisstjórnin og svikalið hennar ævarandi skömm fyrir allt þetta og miklu fleira.

Svo er a.m.k. sagt.