Sjálfstæðisflokkurinn er undarlegur flokkur og allt að því hættulegur á köflum. Það var mér enn frekar en áður ljóst þegar ég rakst á þessa frétt í gærkvöldi. Þar segir frá yfirlýsingu þingflokks sjálfstæðisflokksins sem þingflokksformaður hans las upp á þinginu á laugardaginn en hafði alveg farið framhjá mér þar til nú.
Í yfirlýsingunni er því í fyrsta lagi haldið fram að ég hafi tekið nýtt skref í afsökunarbeiðni minni til þingmanns flokksins sem að mati flokksins hlýtur því að vera eitthverskonar ferli sem þeim sem verður á í messunni gagnvart honum ber að fara, skref fyrir skref það til Flokkurinn að lokum fellur sig við hana.
Ekkert slíkt hefur gerst af minni hálfu. Afsökunarbeiðni mín var fullgild og við henni tekið af viðkomandi þingmanni eins og áður hefur komið fram.
Þingmenn Flokksins krefjast þess í yfirlýsingu sinni að gripið verði til frekari aðgerða af hálfu þingsins að öðrum kosti hlýtur væntanlega að koma til harðari refsiaðgerða af hans hálfu sbr. fyrri yfirlýsingar í þá veru.
Svo virðist vera að Flokkurinn telji það á hans valdi að dæma menn seka eða saklausa og þá jafnt til pólitískra refsinga eða sýknu eftir því hvert mat þingmanna hans er á hverju máli fyrir sig. Sjálfstæðismenn telja sig líklega hafa það vald jafnt frá guði og mönnum að refsa þeim sem hvorki bugta sig fyrir honum eða lúta hans lögmálum. Það virðist í það minnsta vera mat þingmanna sjálfstæðisflokksins eins og það kemur fram hjá talsmönnum hans þessa daganna.
Það mat er hinsvegar rangt.
Alveg kolrangt.