Það er rétt sem varaformannsefni sjálfstæðisflokksins heldur fram að þingmenn hafi reynt að hafa áhrif á mótmæli almennings við Alþingis.
Þingmaður einn gekk meira að segja svo langt að skrifa opinbert bréf til flokksmanna sinna þar sem hann hvetur til mótmæla við setningu þingsins sl. haust og gefur þar í skyn að óvíst sé um hvort lögreglan verði til varnar þingmönnum eins og sumir lögreglumenn höfðu gefið í skyn. Flokksmenn gætu því átt greiða leiða að stjórnarliðum, tækifæri sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Það ætti að vera tiltölulega létt verk fyrir varaformannsefnið að rannsaka þessi atkvik enda allt innanbúðarmál hjá honum.
Annað þeirra innan veggja lögreglunnar og hitt á hinu pólitíska heimil hans í Valhöll.