Skemmtileg en gagnslítil skoðanakönnun

Samkvæmt þessari skoðanakönnun treysti aðeins þriðjungur svarenda (794 svör) sér til að gefa upp hvaða ráðherra ríkisstjórnarinnar þeir treystu best. Svarhlutfallið við þessari spurningu er um það bil það sama og stuðningur við ríkisstjórnina  mælist á landsvísu, rétt um þriðjungur. Þriðjungur af 794 svarendum eru aðeins 262 einstaklingar.
Miðað við þetta hefur sá ráðherra sem mests trausts nýtur aðeins 105 einstaklinga á bak við sig og aðeins 2-3 hafa treyst sér til að nefna þann sem minnsta traustið hefur.
Þetta lítur þá svona út:

105 segjast treysta BB best allra – 157 eða 60% treysta öðrum betur

55 segjast treysta Ólöfu Nordal best – 207 eða 79% treysta öðrum betur

45 segjast treysta Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni best – 217 eða 83% treysta öðrum betur

16 segjast treysta Eygló Harðardóttur best allra – 246 eða 94% treysta öðrum betur

13 Segjast treysta Kristjáni Þór Júlíussyni best allra – 249 eða 95% treysta öðrum ráðherrum betur

8 segjast treysta þeim mest þeim Gunnari Braga Sveinssyni, Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Sigurði Ingja Jóhannssyni best allra – 254 eða 97% treysta öðrum betur

5 segjast treysta Illuga Gunnarssyni best allra – 257 eða 98% treysta öðrum betur

3 segjast treysta Sigrúnu Magnúsdóttur best allra – 259 eða 99% svarenda treysta öðrum ráðherrum betur

Þessi skoðanakönnun er auðvitað bara tóm vitleysa og til lítils gagns að birta hana.
En það má samt hafa af henni nokkra skemmtun.