Lítill heimur - litlir menn

Vladimir Putin, forseti Rússlands var nýlega valinn maður ársins í Rússlandi, fimmtánda árið í röð. Honum hefur væntanlega þótt það verðskuldað.
Forseti Íslands veitti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra Íslands nýlega stórkross hinnar íslensku fálkaorðu samkvæmt tilnefningu frá Guðna Ágústssyni fyrrum formanni framsóknarflokksins. Þeim hefur væntanlega öllum þótt það verðskuldað.
Heimurinn er stundum minni en maður heldur.