Efast um Sigmund Davíð

Æ fleiri framsóknarmenn efast nú um stjórnunarhæfileika Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins, í kjölfar ákvörðunar Guðna Ágústssonar um að hætta við framboð í Reykjavík en Sigmundur mun hafa komið að því máli. Nýleg mæling á óvinsældum Sigmundar Davíðs bætir heldur ekki úr skák en þar kemur m.a. fram að 89% aðspurðra telja formann framsóknarflokksins ekki vera heiðarlegan stjórnmálamann og um helmingur að hann sé ekki gæddur neinum þeirra kosta sem spurt er um í mælingunni. Til að bæta svo gráu ofan á svart mun Sigmundur Davíð svo hafa skellt sér til útlanda og skilið flokkinn eftir í fullkomnu uppnámi á meðan.
Enginn forystumaður framsóknar virðist nú vera tilbúinn til að koma opinberlega fram fyrir hönd flokksins eða tala í hans nafni um ástandið innan hans. Þess í stað eru sendar út stuttar fréttatilkynningar og óljós skilaboð.
Uppákoman í tengslum við ekki-framboð Guðna Ágústssonar gæti því haft dýpri og alvarlegri afleiðingar fyrir flokkinn en ætla mætti í fyrstu.
Ekki síst fyrir formann flokksins og forsætisráðherra.