Í öllum venjulegum lýðræðisríkjum hefði skýrsla RNA á orsök og aðdraganda Hrunsins nægt til að þurrka flokka eins og framsóknar- og sjálfstæðisflokkinn út af þjóðþingum. Þegar svo önnur RNA-skýrsla bætist ofan á þá fyrri sem vitnar enn frekar um pólitísk afglöp, misnotkun á almannafé og spillingu þessara flokka, ætti það að öllu jöfnu að nægja til að útiloka slíka flokka frá þátttöku í stjórnmálum.Framsóknarflokkurinn og sjálfstæðisflokkurinn hafa unnið meiri efnahagsleg og siðferðileg skemmdarverk á íslensku samfélagi en nokkrir stjórnmálaflokkar hafa unnið þjóð sinni um víða veröld á síðari tímum. Þeir eru þjóðinni hættulegir. Ár eftir ár opinberast fyrir almenningi hversu spilltir þeir eru og hvað þeirra pólitíska eðli er illt. Æ ofan í æ er vitnað um hversu alvarlegar afleiðingar það hefur haft fyrir íslenskan almenning, heimili og fyrirtæki að fela slíkum ógnaröflum stjórn landsins. Í öllum venjulegum ríkjum myndi engum óbrjáluðum manni láta sér detta það í hug að kenna sig við flokka sambærilega framsóknar- og sjálfstæðisflokknum, hvað þá að kjósa þá.
Nema á Íslandi.