Úr myrkrakompum Valhallar

Friðjón R. Friðjónsson er náinn samstarfsmaður Bjarna Benediktssonar. Hann var aðstoðarmaður hans lengst af á síðasta kjörtímabili og verið lengur í innsta hring Flokksins en ungum mönnum er hollt. Friðjón R. Friðjónsson er því enginn venjulegur Friðjón. Í því ljósi ber að lesa skrif hans um Framsóknarflokkinn. Þetta eru sem sagt ekki einstaklingsskrif sem hent hefur verið á netið af glaseygum heimdellingi út í nóttina í tímabundnu reiðikasti. Þvert á móti. Þessi grein var framkölluð í dýpstu myrkrakompu Valhallar í hæfilegri stærð og skerpu. Skilaboðin eru þau að Flokkurinn sé að  finna til fótanna eftir útreiðina sem hann fékk í kosningunum og þurfi ekkert frekar en hann vill að mynda ríkisstjórn með Framsóknarflokknum.  Skilaboðin eru þau að sökum reynsluleysis og aumingjaskapar  hins nýja þingflokks þurfi framsóknarmenn á þrautreyndum valdaflokki að halda til að komast til manns og pólitískra metorða. Skilaboðin eru þau að formaður Framsóknarflokksins hafi haldið illa á þeim spilum sem bóndinn á Bessastöðum lét í hendurnar á honum.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sent út skilaboð um að hann sé líklegur til að taka málin í sínar hendur og hefja viðræður við aðra flokka en Framsóknarflokkinn.

Bjarni Benediktsson hefur endurheimt símann sinn úr hundskjaftinum og sterkt kaffið úr nýuppgerðri kaffivélinni virðist hafa vakið hann til lífsins til að nota hann.