Icesave-reikningarnir voru innlánsreikningar í Bretlandi og Hollandi sem buðu upp á hærri vexti en aðrir bankar
Landsbankinn opnaði útibú í Bretlandi síðla árs 2006 (bls. 7) og Hollandi vorið 2008 (bls. 54)
Innstæður á Icesavereikningunum um 1.250 milljarðar við Hrunið (bls. 3) og viðskiptavinirnir um 350 þúsund
Icesave var orðið til vandræða í byrjun árs 2008 (bls. 11).
Ríkisstjórnin gerði samkomulag um málið við Breta og Hollendinga haustið 2008
Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um að semja um málið haustið 2008
Samningur um málið lá fyrir haustið 2008
Samningur með fyrirvara um samþykki Alþingis lagður fram 2009
Lög um lausn málsins samþykkt með fyrirvörum í ágúst 2009
Bretar og Hollendingar hafna fyrirvörunum
Ný lög samþykkt á Alþingi 30. desember 2009
Lögin felld í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010
Nýr samningur gerður 2010
Ný lög samþykkt á Alþingi 2011 með miklum meirihluta atkvæða
Lögin felld í þjóðaratkvæðagreiðslu í apríl 2011
ESA höfðar mál gegn Íslandi vegna brota á tilskipun og jafnræði
Dómur fellur Íslandi í hag 28. janúar 2013
Framhaldið: Bretar og Hollendingar fá Icesave-skuldina að fullu greidda með eignum þrotabús Landsbankans ásamt vöxtum frá haustinu 2008 til 22. apríl 2009.