Vinsældir ríkisstjórnar Katrínar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur nýtur mikils og almenns stuðnings meðal þjóðarinnar eins og komið hefur ítrekað fram í könnunum, t.d. hér  og hér. Margir hafa líka miklar væntingar  til ríkisstjórnarinnar sem hún á eftir að standa undir, enda aðeins örfáir dagar frá því að hún tók við völdum. Þessar miklu vinsældir eru ekki til komnar vegna þess að Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra eða vegna þess að Bjarni Benediktsson hafi mikið traust meðal kjósenda. Heldur betur ekki. Vinsældirnar má heldur ekki rekja til fyrstu fjárlaga ríkisstjórnarinnar eða aðgerða hennar almennt á þeim fáu dögum sem hún hefur starfað. Langt því frá.
Vinsældir ríkisstjórnarinnar stafa mest af því að almenningur treystir því að hún muni tryggja stöðugt stjórnarfar eftir róstur undanfarinna ára og að undir forystu Vinstri grænna muni almenn velferð í landinu aukast frá því sem verið hefur.
Eins og ég hef áður sagt – þetta verður góð ríkisstjórn.

 

Mynd: Pressphoto.biz