Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lítur á stöðuna á vinnumarkaðinum frá heldur furðulegu sjónarhorni, svo ekki sé nú meira sagt. „Við stöndum frammi fyrir alls konar kröfum, ýmist um hækkun lægstu launa eða hækkun millilauna, meta menntun til launa eða gera aðrar breytingar milli yfirvinnu og dagvinnu. Það skortir algerlega á, finnst mér, að launþegahreyfingin reyni að samrýma sína kröfugerð svo við getum haft slíka beina aðkomu,“ segir fjármálaráðherrann.
Það er einmitt það!
Kröfur launþega eru of margar og flóknar fyrir ráðherrann. Hann vill að þær verði einfaldaðar og samræmdar. Helst að launafólk komi sér saman um eina auðskiljanlega kröfu. Það er eins og fjármálaráðherrann átti sig ekki á því að aðstæður fólks eru ólíkar og því þurfi að bregðast við með ólíkum hætti til að bæta kjörin. En þannig er það þó eins og flestir vita.
Það búa ekki allir í Garðabænum.
Mynd: PressPhotos.biz