Framsóknarflokkurinn er rasistaflokkur

 „Allur þorri framsóknarmanna er kominn með upp í kok af framgangi borgarstjórnarflokksins.“ Þetta fullyrðir Stefán Bogi Sveinsson bæjarfulltrúi framsóknarflokksins á Fljótsdalshéraði. Þetta er rétt hjá Stefáni Boga. Flestir framsóknarmenn eru afar ósáttir við að hafa í forystu fyrir flokkinn fólk sem elur á fordómum og andúð gagnvart trúarbrögðum og kynhneigð.
En það breytir ekki því að á meðan svo er þá er framsóknarflokkurinn rasistaflokkur.
Nokkrum dögum fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar mældist framsóknarflokkurinn í Reykjavík nánast ekki í könnunum. Hann var fylgislaus. Eftir að forystufólk flokksins í borginn fór að  ala á andúð gegn múslimum og öðrum minnihlutahópum margfaldaðist fylgið og skilaði flokknum á endanum tveim borgarfulltrúu. Á þeim tíma neituðu allir ráðherrar og formaður framsóknarflokksins að tjá sig um framgöngu frambjóðenda flokksins í Reykjavík. Það var ekki fyrr en búið var að telja atkvæðin að fyrst fór að heyrast í þeim.
Borgarfulltrúar framsóknarflokksins sitja því í umboði reykvískra rasista. Það voru atkvæði rasista sem fleyttu þeim til frama fyrir flokkinn í Reykjavík. Borgarfulltrúarnir eru enn báðir í framsóknarflokknum. Flokkurinn hefur ekki afneitað þeim. Á meðan svo er þá er framsóknarflokkurinn rasistaflokkur.
Það er þó langt því frá að allir framsóknarmenn séu rasistar. Þess vegna er þorri framsóknarmanna búinn að fá upp í kok af þessu liði.
Eins og reyndar þjóðin öll.