Hvað ef ...?

Hvað ef blaðamenn DV hefðu gefist upp á Lekamálinu eða látið það niður falla eins og aðrir fjölmiðlar gerðu?
Hvað ef menn með þetta hugarfar hefðu náð tangarhaldi á DV fyrir ári eða svo?
Hvað ef Björn Ingi Hrafnsson og félagar hefðu keypt DV um síðustu áramót?
Hvað ef almenningur hefði ekki látið sig málið varða með skrifum og mótmælum?
Væri Hanna Birna Kristjánsdóttir þá enn ráðherra?
Væru blaðamenn DV þá komnir í fangelsi?
Þessu verður seint svarað. Það gæti þó skýrst á næstu dögum í því hvernig fjölmiðlar munu fylgja málinu eftir.
Ef það verður þá gert.