Forsætisráðherra segist hafa fengið vinnulagið við styrkveitingar í arf frá síðustu ríkisstjórn. Það sé því ekki honum að kenna hvernig hann sjálfur sáldraði peningum út til vina sinna og vandamanna, heldur Jóhönnu Sigurðardóttur.
En eru einhver dæmi um þetta?
Úthlutaði Jóhanna einhvern tíma styrkjum til þeirra sem ekki báðu um þá?
Eru dæmi um að Jóhanna hafi sent fólki styrki með SMS skilaboðum?
Hvenær úthlutaði Jóhanna helmingi styrkja í sitt eigið kjördæmi?
Staðreyndin er sú að þetta er allt ósatt hjá forsætisráðherranum eins og fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um dæmalausa meðferð ráðherrans á almannafé. Það eru engin dæmi um viðlíka vinnubrögð og hann hefur ástundað. Á síðasta kjörtímabili úthlutaði sérstök ráðherranefnd styrkjum í samráði við fagráðuneytin til ýmissa verkefna sem annaðhvort voru ákveðin af Alþingi eða samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar sjálfrar.
Forsætisráðherra virðist líta svo á að sannleikurinn sé sjaldgæf og takmörkuð auðlind sem beri að fara sparlega með.
Þess vegna lýgur hann daginn út og inn.