Eygló verður sér til skammar

Eygló Harðardóttir ráðherra segir framsóknarflokkinn vera fórnarlamb grófrar hatursumræðu, sambærilegri þeirri sem beinst hefur gegn konum víða um heim. Eygló misnotaði aðstöðu sína sem ráðherra á norrænu kvennaráðstefnu Nordisk Forum í Malmö til að verja stefnu flokksins eins og hún var borin fram af leiðtoga flokksins í Reykjavík í aðdraganda sveitastjórnarkosninganna. Hún bað þátttakendur á ráðstefnunni um ráð og hjálp handa framsóknarflokknum til að geta framfylgt þeirri stefnu hans. Hún laug því á stórri ráðstefnu kvenna um jafnréttismál að framsóknarflokkurinn á Íslandi væri fórnarlamb hatursumræðu. Hún sagði ekki frá því hvernig á því stóð að hann margfaldaði fylgi sitt í Reykjavík og í hverra umboði borgarfulltrúar flokksins sitja.
Eygló varð þjóð sinni til skammar með þessum málflutningi. Hún varð jafnréttisumræðunni til skammar og hún varð sjálfri sér til skammar með framgöngu sinni á ráðstefnunni. Síðast en ekki síst gerir hún lítið úr vanda kvenna og þeirri mismunun sem þær hafa mátt þola um  ár og aldir.
Það gerir hún með því að færa ímyndarvanda framsóknarflokksins inn á þessa ráðstefnu og leggja hann að jöfnu við hatursumræðu gegn konum.
Eygló Harðardóttir ætti að biðja alla hlutaðeigendur afsökunar á framferði sínu.