Það hefur ekki farið mikið fyrir Ragnheiði Elínu Árnadóttur eftir að hún varð ráðherra og það litla sem hún hefur gert er hún nú að reyna að lagfæra og færa aftur til fyrra horfs. Dæmi um það eru fjárveitingar til ferðamannastaða sem voru auknar verulega á síðasta kjörtímabili. Það fyrsta sem Ragnheiður Elín gerði sem ráðherra ferðamála var að skera niður allar fjárveitingar til uppbyggingar ferðamannastaða, þ.m.t. Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Ríkisstjórn hægriflokkanna sló einnig af allar áætlanir um frekara fjármagn til ferðamála með því að stöðva framkvæmdaáætlun stjórnvalda um fjármögnun og uppbyggingu í þeim geira.
En nú er Ragnheiður Elín búin að átta sig á að þetta voru allt rangar ákvarðanir. Ráðherrann hefur því ákveðið að reyna að draga úr skaðanum með því að óska eftir meiri peningum til uppbyggingar ferðamannastaða í sumar til að forðast frekara tjón.
Fréttastjóri viðskiptafrétta á 365 miðlum og samflokkskona Ragnheiðar Elínar snýr þessu hins vegar öllu á hvolf og segir að Ragnheiður Elín sé að snúa vörn í sókn, enda hafi hún tekið við málaflokknum í óviðunandi stöðu vegna sinnuleysis forvera hennar! Þetta er sami fréttastjóri og kvartaði undan því að verið væri að rannsaka Hrunið.
Staðreyndin er hins vegar sú að Ragnheiður Elín er að skylmast við sjálfa sig og afleiðingar eigin ákvarðana. Ráðstafanir hennar nú eru lítið annað en taugaveiklunarleg skyndiviðbrögð við röngum ákvörðunum hennar sjálfrar.
Hvað sem 365 miðlum finnst um það.