Sagt er að fólk hafi fagnað mjög ræðu Benedikts Jóhannessonar á mótmælafundi gegn ríkisstjórninni á Austurvelli í gær. Benedikt boðaði í ræðu sinni stofnun nýs stjórnmálaflokks hægra megin við miðju og hliðhollan ESB. Slíkur flokkur er reyndar til nú þegar en vilji brottfloginna sjálfstæðismanna virðist ekki stefna til að ganga til liðs við hann, heldur stofna nýjan. Nýja pólitíska heimili flóttafólksins úr sjálfstæðisflokknum sýnist mér eigi að innrétta að öllu leyti eins og æskuheimilið nema að þar verður aukaherbergi fyrir Evrópusambandið. Benedikt Jóhannesson (sem er hinn mætasti maður að því er mér er sagt) og félagar hans úr sjálfstæðisflokknum virðast hafa fundið nýja flokknum jarðveg í hópi mótmælenda á Austurvelli, svo undarlegt sem það kann nú að hljóma. Kannski endar það með því, eftir allt sem á undan er gengið, að mótmæli almennings verði til þess að stofnaður verður nýr og stór hægriflokkur?
En var einhver að biðja um það?