Þeir eru að ljúga ...

Það er rétt sem fram kemur hjá þessum Simon Black að íslenskum almenningi hefur ekki og verður ekki bjargað frá afleiðingum Hrunsins. Það eru engir aðrir til að taka skellinn en þjóðin sjálf. Þannig er það hjá öllum þjóðum, það er almenningur, þjóðin sjálf sem axlar ævinlega þungann af mistökum stjórnmálamanna. Á þetta hef ég marg oft bent og varað við lýðskrums umræðu um auðveldar leiðir út úr miklum vanda.Hitt er annað mál að það tókst að bjarga Íslandi frá gjaldþroti og ná tökum á nær tapaðri stöðu með aðferðum sem ekki höfðu áður verið farnar. Árangur hefur vakið athygli og er óumdeildur.Það er hinsvegar óheiðarlegt að halda því fram eins og ríkisstórnarflokkarnir gera, að almenningur geti sloppið undan afleiðingum Hrunsins og einhverjir aðrir komi til með að borga brúsann. Þannig er það ekki.
Þeir sem þannig tala - þeir eru að ljúga.