Eygló ótrúlega óábyrg

 Í verklagsreglum um kostnaðarmat lagafrumvarpa segir:„Kostnaðarmat skal ávallt liggja fyrir þegar frumvarp er lagt fram í ríkisstjórn. Þegar umsögn fjármálaráðuneytisins berst fær sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar afrit af henni.“ Einnig er í reglunum kveðið á um að meta verði áhrif lagafrumvarps á sveitarfélög og ef athugasemdir eru gerðar við lagafrumvarp skala gera breytingar á því.
Það er ekkert nýtt að lagafrumvörp tefjist í kostnaðarmati hjá fjármálaráðuneytinu á meðan verið er að vinna þau betur og meta áhrif þeirra. Ég man hins vegar ekki eftir því að mál hafi hreinlega stoppað í ráðuneytinu vegna þess hve illa þau eru unnin. Ég veit heldur ekki til þess að fagráðuneyti og fjármálaráðuneyti hafi ekki fundið lausn á málum og að þau hafi farið í þann farveg sem húnsæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur eru komin í. Starfsfólk fjármálaráðuneytisins ber ábyrgð á því að frumvörp séu vel unnin að þessu leytinu til og standist skoðun. Ábyrgð þeirra er því mikil. Því fólki verður ekki mútað með orkustöngum(link is external).
Að sama skapi er það ótrúlega óábyrgt(link is external) af hálfu ráðherra að hóta okkur því að fara fram með lagafrumvörp sem standast ekki skoðun.
Slík vinnubrögð eiga að heyra fortíðinni til.